Arsenal, Liverpool og City vilja Collins - Salah glaður til í að vera áfram hjá Liverpool - Man Utd hyggst selja markverði
   fim 26. febrúar 2026 22:26
Brynjar Ingi Erluson
Lengjubikarinn: Annar sigur ÍR-inga
Orri Bjarka skoraði sigurmark ÍR undir lok leiks
Orri Bjarka skoraði sigurmark ÍR undir lok leiks
Mynd: ÍR
ÍR 3 - 2 Grindavík
0-1 Rúnar Ingi Eysteinsson ('3 )
1-1 Guðjón Máni Magnússon ('42 )
2-1 Guðjón Máni Magnússon ('57 )
2-2 Rúnar Ingi Eysteinsson ('67 )
3-2 Orri Bjarkason ('85 )

ÍR-ingar náðu í annan sigur sinn í Lengjubikarnum í ár og er von þeirra enn á lífi um að taka toppsætið eftir að hafa unnið 3-2 sigur á Grindavík í Egilshöllinni.

Rúnar Ingi Eysteinsson braut ísinn fyrir Grindvíkinga á 3. mínútu en Guðjón Máni Magnússon svaraði undir lok fyrri hálfleiks og kom síðan ÍR-ingum í forystu þegar tólf mínútur voru liðnar af síðari hálfleik.

Rúmum tuttugu mínútum fyrir leikslok jafnaði Rúnar Ingi með öðru marki sínu í leiknum.

ÍR-ingar vissu að sigurmark myndi halda þeim í baráttunni um toppsætið og sá Orri Bjarkason um að halda þeirri von á lífi með sigurmarki á 85. mínútu.

ÍR-ingar eru áfram í 4. sæti C-riðils í A-deild en nú með 7 stig þegar ein umferð er eftir. ÍR á enn möguleika á að hirða toppsæti riðilsins en til þess þarf liðið að treysta á jafntefli í leik KR og Njarðvíkur um helgina og vinna síðan Íslandsmeistara Víkings þann 5. mars.


Stöðutaflan Ísland Lengjubikar karla
  L U J T ms: mf: mun Stig
Athugasemdir
banner
banner