Börsungar vilja Rashford aftur á láni - Ndidi gæti farið til Man Utd - Hár verðmiði á Tonali
   fim 26. febrúar 2026 16:05
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tudor: Mesta áskorun sem ég hef tekið að mér
Mynd: EPA
Igor Tudor var ráðinn bráðabirgðastjóri Totteham fyrr í þessum mánuði og stýrði liðinu í fyrsta sinn geg Arsenal um síðustu helgi, Tottenham er í 16. sæti úrvalsdeildarinnar og er í raunverulegri fallhættu.

Tottenham er eina liðið í deildinni sem ekki hefur unnið leik á árinu 2026. Tottenham heimsækir Fulham á sunnudag.

„Líklega já, út frá erfiðleikunum sem við glímum við. Þetta er enn stærri áskorun, enn meiri hvatning til að gera þetta. En ég er sammála þér," sagði Tudor þegar hann var spurður hvort að starfið að stýra Tottenham væri erfiðasta björgunarstarf sem hann hefði tekið að sér.

Hann segir að Pedro Porro og Kevin Danso verði til taks í leiknum. Micky van de Ven glímir við meiðsli á litlu tá en getur spilað.

Tudor er 47 ára og hefur áður starfað hjá stórum félögum á borð við Galatasaray, Marseille, Lazio og Juventus.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 31 21 7 3 61 22 +39 70
2 Man City 30 18 7 5 60 28 +32 61
3 Man Utd 30 15 9 6 54 41 +13 54
4 Aston Villa 30 15 6 9 40 37 +3 51
5 Liverpool 30 14 7 9 49 40 +9 49
6 Chelsea 30 13 9 8 53 35 +18 48
7 Brentford 30 13 6 11 46 42 +4 45
8 Everton 30 12 7 11 34 35 -1 43
9 Newcastle 30 12 6 12 43 43 0 42
10 Bournemouth 30 9 14 7 44 46 -2 41
11 Fulham 30 12 5 13 40 43 -3 41
12 Brighton 30 10 10 10 39 36 +3 40
13 Sunderland 30 10 10 10 30 35 -5 40
14 Crystal Palace 30 10 9 11 33 35 -2 39
15 Leeds 30 7 11 12 37 48 -11 32
16 Tottenham 30 7 9 14 40 47 -7 30
17 Nott. Forest 30 7 8 15 28 43 -15 29
18 West Ham 30 7 8 15 36 55 -19 29
19 Burnley 30 4 8 18 32 58 -26 20
20 Wolves 31 3 8 20 24 54 -30 17
Athugasemdir
banner
banner