Mo Salah til Sádi? - Alonso klár ef skilyrði verða uppfyllt - Bastoni til Barca eða Liverpool - Hafa ekki áhyggjur af Rashford
   fim 26. mars 2026 16:39
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tók Daníel Tristan tæpar tvær mínútur að skora fyrsta markið
Úr upphitun fyrir leikinn í dag.
Úr upphitun fyrir leikinn í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Íslenska U21 landsliðið er komið yfir gegn Eistum en liðin eru að spila þessa stundina á AVIS-vellinum.

Það var Daníel Tristan Guðjohnsen sem skoraði mark Íslands eftir innan við tveggja mínútna leik.

Eistar voru að leika sér að eldinum með því að reyna spila út úr hápressu íslenska liðsins en það misheppnaðist gjörsamlega. Fyrirliðinn Gísli Gottskálk Þórðarson komst í boltann inn á vítateig Eista og kom boltanum á Daníel sem var í dauðafæri og nýtti það.

Lestu um leikinn: Ísland U21 6 -  1 Eistland U21

Daníel, sem er tvítugur og spilar með Malmö í Svíþjóð, er að spila sinn fyrsta leik fyrir U21 landsliðið en hann hefur þegar spilað fimm leiki fyrir A-landsliðið.

Leikurinn er liður í undankeppni EM 2027 og er mikilvægt fyrir íslenska liðið að ná sigri til að halda von um sæti á EM á góðu lífi.
Slapp
Athugasemdir
banner