Bristol City 1 - 2 Watford
0-1 Luca Kjerrumgaard ('7 )
1-1 Scott Twine ('36 )
1-2 Jeremy Ngakia ('77 )
0-1 Luca Kjerrumgaard ('7 )
1-1 Scott Twine ('36 )
1-2 Jeremy Ngakia ('77 )
Bristol City og Watford áttust við í eina leik kvöldsins í Championship deildinni og tóku gestirnir forystuna snemma leiks þegar Luca Kjerrumgaard skoraði eftir frábæran undirbúning frá liðsfélögum sínum. Georgíumaðurinn Giorgi Chakvetadze átti frábæran sprett upp vinstri vænginn áður en Edo Kayembe lagði boltann fyrir Kjerrumgaard sem skoraði af stuttu færi.
Heimamenn í Bristol voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleiknum og verðskulduðu jöfnunarmark á 36. mínútu, þegar Scott Twine skallaði frábæra fyrirgjöf frá Adam Randell í netið.
Watford var svo sterkara liðið í síðari hálfleiknum þar sem Bristol hélt boltanum mikið án þess að skapa færi. Gestirnir virkuðu hættulegir í hvert sinn sem þeir sóttu og gerði Jeremy Ngakia sigurmark leiksins á 77. mínútu með óverjandi bylmingsskoti af um 20 metra færi.
Lokatölur 1-2 og er Watford einu stigi fyrir ofan Bristol í baráttunni um umspilssæti. Watford er þremur stigum frá umspilssæti og eiga öll liðin í kring leik til góða.
Athugasemdir



