Taplausir lærlingar Simone Inzaghi í stórveldi Al-Hilal skoruðu fimm mörk á útivelli til að leggja Josh Brownhill, Yannick Carrasco og félaga í sterku liði Al-Shabab að velli er liðin mættust í efstu deild í Sádi-Arabíu í kvöld.
Al-Hilal er taplaust en jafntefli í undanförnum leikjum hafa leitt til þess að liðið situr núna í þriðja sæti í gríðarlega spennandi þriggja liða titilbaráttu, með 58 stig eftir 24 umferðir, einu stigi frá toppsætinu. Al-Ahli og Al-Nassr eru í næstu sætum fyrir ofan þar sem Cristiano Ronaldo og félagar í liði Al-Nassr eiga leik til góða.
Kalidou Koulibaly og Marcos Leonardo voru meðal markaskorara í sigri Al-Hilal, en Josh Brownhill og Yacine Adli komust á blað í liði Al-Shabab. Lokatölur urðu 3-5 fyrir Al-Hilal. Al-Shabab er í neðri hluta deildarinnar með 25 stig eftir 24 umferðir þrátt fyrir að vera með sterkan leikmannahóp, en Wesley Hoedt var einnig í byrjunarliðinu í kvöld ásamt Abderrazak Hamdallah sem skoraði í leiknum.
Theo Hernández, Rúben Neves, Sergej Milinkovic-Savic og Yassine Bounou voru á sínum stað í byrjunarliði Al-Hilal en Malcom kom inn af bekknum. Karim Benzema var ekki í hóp vegna meiðsla.
Al-Hilal gerði fimm jafntefli í sjö leikjum til að missa toppsætið frá sér, en eru komnir aftur á sigurbraut.
Portúgalski varnarjaxlinn Danilo Pereira skoraði þá eina mark leiksins er ríkjandi meistarar Al-Ittihad lögðu Al-Khaleej að velli í nokkuð jöfnum slag.
Moussa Diaby, Fabinho, Houssem Aouar og Youssef En-Nesyri voru meðal byrjunarliðsmanna í liði Al-Ittihad sem siglir lygnan sjó í efri hluta deildarinnar, 19 stigum frá toppbaráttunni.
Að lokum hafði Al-Hazem betur á heimavelli gegn tíu leikmönnum Al-Ettifaq sem náðu forystunni snemma leiks en misstu svo mann af velli skömmu síðar.
Georginio Wijnaldum bar fyrirliðabandið en tókst ekki að koma í veg fyrir endurkomu Al-Hazem, svo lokatölur urðu 3-1. Al-Ettifaq er einu stigi á eftir Al-Ittihad í efri hluta deildarinnar.
Al-Shabab 3 - 5 Al-Hilal
1-0 Josh Brownhill ('13)
1-1 Mohamed Kanno ('19)
1-2 A. Al-Bulayhi, sjálfsmark ('31)
2-2 Abderrazak Hamdallah ('44)
2-3 Kalidou Koulibaly ('45+2)
2-4 Sultan Mandash ('48)
2-5 Marcos Leonardo ('52)
3-5 Yacine Adli ('75)
Al-Ittihad 1 - 0 Al-Khaleej
1-0 Danilo Pereira ('52)
Al-Hazem 3 - 1 Al-Ettifaq
0-1 Kouka ('9)
1-1 Y. Al-Shammari ('17)
2-1 F. Martins ('43)
3-1 A. Bah ('82)
Rautt spjald: A. Hindi, Al-Ettifaq ('15)
Athugasemdir




