Jesse Lingard, fyrrum leikmaður Manchester United og enska landsliðsins, nálgast samkomulag við brasilíska stórveldið Corinthians.
Lingard er án félags eftir að samningur hans við FC Seoul rann út um áramótin. Lingard er 33 ára gamall og hefur verið mikilvægur hlekkur í suður-kóreska félaginu undanfarin ár, en þar áður var hann samningsbundinn Nottingham Forest.
Lingard er í viðræðum við Corinthians um samning sem gildir til áramóta. Félög frá Evrópu og Bandaríkjunum eru einnig áhugasöm ásamt fleiri brasilískum félögum, en BBC greinir frá því að Corinthians sé næst því að semja við miðjumanninn sóknarsinnaða.
Lingard lék 32 landsleiki fyrir England og var mikilvægur hlekkur í liðinu sem komst í undanúrslit á HM 2018. Hann lék 232 leiki fyrir uppeldisfélag sitt Man Utd áður en hann hélt á önnur mið.
Corinthians er sögufrægt félag sem hefur unnið brasilísku deildina sjö sinnum, síðast 2017, og er með sjö stig eftir fjórar fyrstu umferðirnar á nýju tímabili.
Memphis Depay, fyrrum liðsfélagi Lingard hjá Man Utd, er lykilmaður hjá Corinthians.
17.02.2026 21:30
Heldur heimshornaflakk Jesse Lingard áfram?
Athugasemdir





