Dýrt að reka Amorim - Klopp ekki að skipta um vinnu - Murillo enn í myndinni hjá Liverpool
banner
   fös 27. febrúar 2026 19:00
Ívan Guðjón Baldursson
Pep: Er ekki hérna til að gefa Mikel ráð
Mynd: EPA
Pep Guardiola þjálfari Manchester City svaraði spurningum á fréttamannafundi í dag fyrir leiki helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Man City heimsækir nýliða Leeds United á morgun.

Hann var meðal annars spurður út í meistaradeildardráttinn og titilbaráttuna við Arsenal.

„Man City - Real Madrid enn eina ferðina," sagði Pep, en þetta er fimmta árið í röð sem félögin mætast í útsláttarkeppni Meistaradeildarinnar. Real Madrid hefur þrisvar sinnum haft betur og City aðeins einu sinni.

„Við lærum af því að spila við bestu lið heims og verðum betri fyrir vikið. Þetta er hollt fyrir okkur."

Þegar var komið að titilbaráttunni á Englandi var Pep spurður út í Mikel Arteta, sinn fyrrum lærisvein í þjálfarateymi Man City. Arteta þjálfar í dag Arsenal og eru félagarnir í harðri titilbaráttu. Pep var spurður hvort hann gæti lýst tilfinningunum sem fylgdu því að vera í titilbaráttu sem þjálfari Barcelona þegar hann vann sinn fyrsta titil sem þjálfari tímabilið 2008-09 og að Arteta hljóti að vera að upplifa svipaðar tilfinningar núnar.

„Ég man það ekki, ég er ekki hérna til að gefa Mikel ráð," svaraði Pep alvarlegur áður en hann missti smá glott út úr sér.

   27.02.2026 17:15
Doku mættur aftur til æfinga - Ramadan hefur ekki áhrif á liðsval

Athugasemdir
banner
banner
banner