Dýrt að reka Amorim - Klopp ekki að skipta um vinnu - Murillo enn í myndinni hjá Liverpool
   fös 27. febrúar 2026 16:30
Elvar Geir Magnússon
Vann Meistaradeildina með Barcelona og útskýrir af hverju hann starfar í íþróttabúð í dag
Það er vinsælt að kíkja í verslunina og fá bolamyndir með Mathieu.
Það er vinsælt að kíkja í verslunina og fá bolamyndir með Mathieu.
Mynd: X
Mathieu í leik með Barcelona.
Mathieu í leik með Barcelona.
Mynd: EPA
Jeremy Mathieu, fyrrum varnarmaður Barcelona, hefur útskýrt af hverju hann starfar í íþróttaverslun í dag.

Mathieu sem er 42 ára en á Meistaradeildartitil og tvo Spánarmeistaratitla á ferilskrá sinni sem leikmaður.

Það vakti athygli þegar bolamyndir fóru að dreifast um netið af fótboltaáhugafólki að mynda sér með honum í Intersport íþróttavöruverslun í Frakklandi.

Andlegir erfiðleikar
Mathieu, sem var með yfir 16 milljónir íslenskra króna í vikulaun hjá Barcelona á sínum tíma hefur útskýrt í viðtali við beIN Sports af hverju líf hans hefur breyst svona mikið.

„Það hefur ýmislegt gengið á sem hefur skapað mér mikla erfiðleika. Ég stend í málaferlum. Ég mun ekki gera þetta að eilífu, ég fór í þessa vinnu til að eiga félagslíf," segir Mathieu.

Hann hefur átt í andlegum erfiðleikum og glímt við þunglyndi eftir ferilinn, eitthvað sem hann hafi enn ekki jafnað sig fullkomlega af. Fyrrum liðsfélagi hans, Loic Loval, hjálpaði honum að finna vinnu til að koma honum út úr húsi og umgangast fólk.

„Hann vissi að ég vildi komast út úr húsi. Ég hafði ekki verið að gera neitt í nokkurn tíma. Við vorum að spjalla saman og hann sagði mér að það væri laus staða í þessari búð," segir Mathieu.

Mathieu var 36 ára þegar hann lagði skóna á hilluna eftir að hafa meiðst illa á hné þegar hann var hjá Sporting Lissabon.

Hann kom af bekknum þegar Barcelona vann 3-1 sigur gegn Juventus í úrslitaleik Meistaradeildarinnar 2015. Sigur sem innsiglaði hina goðsagnakenndu þrennu undir stjórn Luis Enrique. Hann lék einnig lengi fyrir Valencia.
Athugasemdir
banner
banner
banner