Rogers orðaður við Chelsea - Mourinho vill Rashford - Arsenal opið fyrir því að selja Jesus
   mán 18. maí 2026 13:14
Elvar Geir Magnússon
Leikmaður Scunthorpe varð fyrir hnífaárás í lest
Jonathan Gjoshe.
Jonathan Gjoshe.
Mynd: Scunthorpe
Mynd: Twitter
Varnarmaðurinn Jonathan Gjoshe hefur tjáð sig um hnífaárás sem hann varð fyrir nokkrum vikum eftir að hann gekk í raðir enska C-deildarliðsins Scunthorpe.

Hann var á leið með lest heim til Lundúna þegar maður með hníf réðist að honum og öðrum farþegum.

„Ég var bara að hafa það notalegt í lestinni þegar einhver kemur yfir öxlina á mér og stingur mig," segir hinn 23 ára Gjoshe sem var meðal ellefu farþega sem urðu fyrir árásinni.

„Ég var fyrst stunginn í öxlina. Ég stökk yfir sætin og hljóp eftir ganginum og öskraði að það væri maður með hníf og ég hefði verið stunginn. Ég tel að ég hafi verið sá fyrsti sem var stunginn."

„Ég hugsaði um að hlaupa til að halda lífi. Ég hafði áhyggjur af því að ég yrði myrtur og myndi ekki sjá fjölskyldu mína aftur. Ég var vanur því að keyra heim til Lundúna en þetta var í fyrsta sinn sem ég tók lestina."

Lestin tók neyðarstopp þar sem vopnaðir lögreglumenn komu inn. Gjoshe var fluttur á bráðamóttöku. Þar kom í ljós að hann hlaut sjö stungusár í handlegginn og var nálægt því að vera stunginn í taug.

Gjoshe hefur ekki viljað ræða við fjölmiðla fyrr en nú en hann sneri aftur til æfinga að fullu í mars. Hann segist ekki hafa stigið upp í lest síðan hann varð fyrir árásinni.

Hann er nú í leit að nýju félagi en Scunthorpe ákvað ekki að bjóða honum nýjan samning.

„Eftir það sem ég gekk í gegnum þá missti ég af stórum hluta tímabilsins og fékk ekki tækifærið sem ég vildi. Ég vonaðist til að fá annað ár til að sanna mig og það eru vonbrigði að hafa ekki fengið það," segir Gjoshe.
Slapp
banner
banner