Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
   mán 18. maí 2026 15:30
Elvar Geir Magnússon
Fall West Ham myndi bitna á skattgreiðendum
Mynd: EPA
Skattgreiðendur í London gætu þurft að borga 2,5 milljónir punda (um 414 milljónir íslenskra króna) aukalega ef West Ham fellur úr ensku úrvalsdeildinni.

West Ham er í átjánda sæti og á einn leik eftir. Liðið gæti fallið á morgun, ef Tottenham nær góðum úrslitum gegn Chelsea.

Samkvæmt leigusamningi West Ham við borgaryfirvöld í London þá borgar félagið helmingi lægri leigu fyrir London leikvanginn ef liðið fellur úr deildinni.

Skattpeningar Lundúnabúa fara meðal annars í gæslu og annan kostnað við að reka leikvanginn.

Sadiq Khan, borgarstjóri London, gagnrýnir Boris Johnson, sem var borgarstjóri 2012, fyrir að hafa gert slæman samning við West Ham.

„Þeir Lundúnabúar sem halda ekki með Tottenham ættu að styðja West Ham, því skattgreiðendur tapa ef West Ham fer niður," segir Khan.

Tekjur af af leikvangnum munu lækka ef West Ham fer niður í Championship-deildina en kostnaður við öryggisgæslu og framkvæmd leikja hækka þar sem 23 heimaleikir eru spilaðir en ekki 19.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 38 26 7 5 71 27 +44 85
2 Man City 38 23 9 6 77 35 +42 78
3 Man Utd 38 20 11 7 69 50 +19 71
4 Aston Villa 38 19 8 11 56 49 +7 65
5 Liverpool 38 17 9 12 63 53 +10 60
6 Bournemouth 38 13 18 7 58 54 +4 57
7 Sunderland 38 14 12 12 42 48 -6 54
8 Brighton 38 14 11 13 52 46 +6 53
9 Brentford 38 14 11 13 55 52 +3 53
10 Chelsea 38 14 10 14 58 52 +6 52
11 Fulham 38 15 7 16 47 51 -4 52
12 Newcastle 38 14 7 17 53 55 -2 49
13 Everton 38 13 10 15 47 50 -3 49
14 Leeds 38 11 14 13 49 56 -7 47
15 Crystal Palace 38 11 12 15 41 51 -10 45
16 Nott. Forest 38 11 11 16 48 51 -3 44
17 Tottenham 38 10 11 17 48 57 -9 41
18 West Ham 38 10 9 19 46 65 -19 39
19 Burnley 38 4 10 24 38 75 -37 22
20 Wolves 38 3 11 24 27 68 -41 20
Slapp
banner