Arsenal er opið fyrir því að selja brasilíska framherjann Gabriel Jesus í sumarglugganum en það hefur sett 30 milljóna punda verðmiða á kappann. Þetta kemur fram á CaughtOffside.
Félagið keypti Jesus frá Manchester City árið 2022 sem gerði hann að einum launahæsta leikmanni félagsins.
Jesus var mjög mikilvægur til að byrja með en erfið hnémeiðsli komu honum aftast í goggunarröðinni og hefur hann fengið fá tækifæri til þess að festa sæti sitt á þessari leiktíð.
Kai Havertz og Viktor Gyökeres eru á undan honum í röðinni og er Arsenal nú tilbúið að leyfa Jesus að fara.
CaughtOffside segir Arsenal vilja 30 milljónir punda fyrir Jesus sem á aðeins eitt ár eftir af samningnum. Það sem er að fæla félög frá er svakalegur launapakki leikmannsins, en hann þénar nú um 265 þúsund pund i vikulaun.
AC Milan og Juventus eru mjög áhugasöm, en þeir kostir eru aðeins í boði ef hann er tilbúinn að taka á sig verulega launahækkun.
Jesus er ekki sá eini sem gæti verið seldur í sumar, en félagið er einnig sagt opið fyrir því að selja Havertz svo hægt sé að fjármagna kaup á argentínska sóknarmanninum Julian Alvarez, sem er á mála hjá Atlético á Spáni.


