Ætlar að fá Kvaratskhelia til Real Madrid - Ngumoha ekki til sölu - Mourinho vill Bernardo Silva
   mán 18. maí 2026 12:18
Kári Snorrason
Tekur á móti gömlu lærisveinunum í Kórnum í kvöld
Lengjudeildin
Tók við HK í vetur eftir tæp þrjú ár í Njarðvík.
Tók við HK í vetur eftir tæp þrjú ár í Njarðvík.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Halldór Geir Heiðarsson og Davíð Smári Lamude.
Halldór Geir Heiðarsson og Davíð Smári Lamude.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
HK fær Njarðvík í heimsókn í stórleik kvöldsins í Lengjudeildinni. Gunnar Heiðar Þorvaldsson tók við HK í vetur eftir að hafa stýrt Njarðvíkingum í tæp þrjú ár.

Með honum fylgdu aðstoðarþjálfarinn Arnar Freyr Smárason og styrktarþjálfarinn Sigurður Már Birnisson frá Njarðvík. Þá sótti Gunnar Heiðar jafnframt framherjann Dominik Radic og bakvörðinn Svavar Örn Þórðarson í Kórinn frá Njarðvík í vetur.

Þá þekkir aðstoðarþjálfari Njarðvíkur, Halldór Geir Heiðarsson (Donni), HK vel en hann var aðstoðarmaður Hermanns Hreiðarsonar í Kórnum á síðasta tímabili.

Bæði lið féllu úr leik í bikarnum í síðustu viku. HK tapaði gegn Íslandsmeisturum Víkings, 2-0. En Njarðvík tapaði 5-2 í Mosfellsbæ gegn Aftureldingu.

Lengjudeild karla
19:15 Fylkir-ÍR (tekk VÖLLURINN)
19:15 HK-Njarðvík (Kórinn)
19:15 Þróttur R.-Leiknir R. (AVIS völlurinn)
19:15 Grótta-Afturelding (Vivaldivöllurinn)


Lengjudeild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Þróttur R. 8 5 1 2 19 - 10 +9 16
2.    Afturelding 8 5 1 2 23 - 15 +8 16
3.    HK 8 5 0 3 16 - 14 +2 15
4.    Fylkir 8 5 0 3 13 - 11 +2 15
5.    Vestri 8 4 1 3 16 - 16 0 13
6.    Leiknir R. 8 3 3 2 11 - 10 +1 12
7.    Grótta 7 4 0 3 14 - 15 -1 12
8.    Njarðvík 8 3 2 3 11 - 7 +4 11
9.    Grindavík 7 1 4 2 7 - 9 -2 7
10.    Ægir 8 2 1 5 9 - 14 -5 7
11.    ÍR 8 2 1 5 16 - 22 -6 7
12.    Völsungur 8 0 2 6 5 - 17 -12 2
Slapp