Fotbolti.net
18.05.26 - 15:00
Elvar Geir Magnússon

Leikmenn Nice flúðu undan bálreiðum stuðningsmönnum sem óðu inn á völlinn

Leikmenn Nice flúðu undan bálreiðum stuðningsmönnum sem óðu inn á völlinn
Canon

Mynd: EPA

Þetta hefur verið erfitt tímabil fyrir franska liðið Nice en bálreiðir stuðningsmenn liðsins óðu inn á völlinn eftir markalaust jafntefli gegn Metz.

Nice hefði þurft að vinna leikinn til að tryggja áframhaldandi veru í deildinni en jafnteflið gerir það að verkum að liðið endaði í þriðja neðsta sæti og fer í umspil við St-Etienne, sem endaði í þriðja sæti B-deildarinnar.

Leikmenn Nice þurftu að flýja á hlaupum inn í búningsklefa undan reiðum harðkjarna stuðningsmönnum. Reiði stuðningsmannan beinist helst að eigandanum Sir Jim Ratcliffe og Ineos en þeir eru að vinna í að reyna að selja félagið.

Nice byrjaði tímabilið í Meistaradeildinni eftir að hafa endað í fjórða sæti á síðasta tímabili en gæti nú fallið í B-deildina. Liðið á þó möguleika á að verða franskur bikarmeistari þar sem það mætir Lens í úrslitaleik á föstudag.
Frakkland: Meistararnir töpuðu borgarslagnum - Auxerre bjargaði sér frá falli
TENGT EFNI

Frakkland: Meistararnir töpuðu borgarslagnum - Auxerre bjargaði sér frá falli

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.