Rogers orðaður við Chelsea - Mourinho vill Rashford - Arsenal opið fyrir því að selja Jesus
   mán 18. maí 2026 12:02
Elvar Geir Magnússon
Tár á hvarmi þegar örlög St. Pauli réðust
St, Pauli er fallið eftir tveggja ára veru í efstu deild.
St, Pauli er fallið eftir tveggja ára veru í efstu deild.
Mynd: EPA
Pönkarafélagið St. Pauli féll úr þýsku Bundesligunni um helgina en liðið lék fallbaráttuslag á heimavelli í lokaumferðinn og tapaði þar 1-3 fyrir Wolfsburg.

Það var mikil spenna í fallbaráttu lokaumferðarinnar en á Millentor í Hamborg, heimavelli St. Pauli, sáust tár á hvarmi í lokin þegar stuðningsmenn horfðu á símana sína og skoðuðu úrslit úr öðrum leikjum.

St. Pauli endaði tímabilið á hræðilegan hátt og vann ekki sigur í síðustu tíu leikjum sínum. Markvörðurinn Nikola Vasilj hefur væntanlega lítið sofið eftir tapið um helgina en sjálfsmark hans kom Wolfsburg yfir í leiknum.

„Það er erfitt að koma orðum að þessu. Leikurinn var táknrænn fyrir allt tímabilið, með hæðum og lægðum. Við vörðumst illa og þessi niðurstaða særir mjög," segir Alexander Blessin, stjóri St. Pauli sem er fallið eftir tveggja ára veru í efstu deild.


Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 34 28 5 1 122 36 +86 89
2 Dortmund 34 22 7 5 70 34 +36 73
3 RB Leipzig 34 20 5 9 66 47 +19 65
4 Stuttgart 34 18 8 8 71 49 +22 62
5 Hoffenheim 34 18 7 9 65 52 +13 61
6 Leverkusen 34 17 8 9 68 47 +21 59
7 Freiburg 34 13 8 13 51 57 -6 47
8 Frankfurt 34 11 11 12 61 65 -4 44
9 Augsburg 34 12 7 15 45 61 -16 43
10 Mainz 34 10 10 14 44 53 -9 40
11 Union Berlin 34 10 9 15 44 58 -14 39
12 Gladbach 34 9 11 14 42 53 -11 38
13 Hamburger 34 9 11 14 40 54 -14 38
14 Köln 34 7 11 16 49 63 -14 32
15 Werder 34 8 8 18 37 60 -23 32
16 Wolfsburg 34 7 8 19 45 69 -24 29
17 Heidenheim 34 6 8 20 41 72 -31 26
18 St. Pauli 34 6 8 20 29 60 -31 26
Slapp
banner
banner