Elversberg verður eitt minnsta félag sögunnar til að spila í þýsku Bundesligunni en liðið tryggði sér sæti í efstu deild með 3-0 sigri gegn föllnu liði Preussen Munster.
Mörk frá Bambase Conte og David Mokwa komu Elversberg í lykilstöðu eftir fimmtán mínútna leik. Mokwa skoraði svo sitt annað mark um miðjan seinni hálfleik.
Það búa um 13 þúsund manns í Spiesen-Elversberg og er það minnsta bæjarfélag sem hefur átt lið í Bundesligunni.
Uppgangur Elversberg hefur verið eftirtektarverður en þetta var í þriðja sinn á fimm árum sem liðið kemst upp um deild.
Fyrirhugaðar eru framkvæmdir á leikvangi félagsins til að hann standist kröfur Bundesligunnar og mun hann taka 15 þúsund manns á næsta ári.
Elversberg endaði í öðru sæti B-deildarinnar og fer upp ásamt Schalke sem vann deildina og snýr aftur í deild þeirra bestu eftir þriggja ára fjarveru.
Paderborn, gæti einnig komist upp en liðið mætir Wolfsburg, sem endaði í 16. sæti efstu deildar, í umspili um hvort liðið verður í efstu deild á næsta tímabili.




