Fotbolti.net
18.05.26 - 14:34
Elvar Geir Magnússon
Jói útherji

Fermin Lopez ekki með á HM

Fermin Lopez, til hægri.

Fermin Lopez, til hægri.

Canon

Mynd: EPA

Fermin Lopez, miðjumaður spænska landsliðsins, verður ekki með á HM í sumar vegna meiðsla sem hann hlaut með Barcelona.

Hann þarf að gangast undir aðgerð.

Lopez er 23 ára og hefur spilað sjö landsleiki. Hann hefði nær örugglega verið í hópnum hjá Luis de la Fuente en hann verður opinberaður á mánudaginn.
HM verður í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó. Spánn er í ræði með Grænhöfðaeyjum, Úrúgvæ og Sádi-Arabíu.

Reiknað er með því að Lopez verði frá í tvo til þrjá mánuði en hann spilaði 28 mínútur á EM 2024 þegar Spánn varð Evrópumeistari.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.