Bournemouth vill 70 milljónir punda fyrir Semenyo - Mörg félög á eftir Elliott - Branthwaite framlengir við Everton
   lau 28. júní 2025 18:22
Ívan Guðjón Baldursson
Chelsea búið að ná samkomulagi við Dortmund um kaupverð
Gittens hefur spilað 107 leiki fyrir Dortmund.
Gittens hefur spilað 107 leiki fyrir Dortmund.
Mynd: EPA
Bild greinir frá því að Chelsea sé loksins búið að ná samkomulagi við Borussia Dortmund um kaup á kantmanninum knáa Jamie Bynoe-Gittens.

Chelsea hefur verið í viðræðum við Dortmund síðastliðnar vikur en Gittens er löngu búinn að gefa munnlegt samþykki fyrir samningi hjá enska úrvalsdeildarfélaginu.

Gittens gerir sjö ára samning við Chelsea sem mun gilda til sumarsins 2032. Leikmaðurinn fer í læknisskoðun hjá Chelsea í kvöld.

Bild segir kaupverðið nema um það bil 65 milljónum evra, sem samsvarar rétt rúmlega 55 milljónum punda.

Gittens er vinstri kantmaður að upplagi sem verður 21 árs í ágúst. Hann kom að 17 mörkum í 48 leikjum með Dortmund á nýliðnu tímabili.

Gittens má ekki taka þátt á HM félagsliða með Chelsea þar sem hann hefur þegar spilað leik með Dortmund í mótinu.
Athugasemdir
banner