

U19 ára landslið kvenna vann góðan 3-1 sigur á Svíþjóð í seinni æfingaleik liðsins í Noregi í dag.
Íslenska liðið tapaði naumlega fyrir Finnum á dögunum en lauk landsliðsverkefninu með stæl.
Svíar komust í forystu gegn Íslandi í fyrri hálfleik í dag, en Ísland skoraði þrjú mörk í seinni.
Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir, Líf Joostsdóttir van Bemmel og Berglind Freyja Hlynsdóttir skoruðu mörk Íslands.
Byrjunarlið Íslands: Anna Arnarsdóttir (M), Líf Joostsdóttir van Bemmel, Helga Rut Einarsdóttir (F), Thelma Karen Pálmadóttir, Edith Kristín Kristjánsdóttir, Hrefna Jónsdóttir, Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir, Freyja Stefánsdóttir, Sunna Rún Sigurðardóttir, Sandra Hauksdóttir, Birgitta Rún Finnbogadóttir.
Athugasemdir