Bournemouth vill 70 milljónir punda fyrir Semenyo - Mörg félög á eftir Elliott - Branthwaite framlengir við Everton
   lau 28. júní 2025 21:17
Ívan Guðjón Baldursson
Enn í viðræðum um Joao Pedro
Mynd: EPA
Chelsea og Newcastle eru enn að reyna að kaupa brasilíska sóknarleikmanninn Joao Pedro úr röðum Brighton.

Brighton hafnaði 50 milljón punda tilboði frá Newcastle á dögunum og er Chelsea að undirbúa tilboð í framherjann. Hann verður meðal efstu manna á óskalista Lundúnafélagsins eftir kaupin á Jamie Bynoe-Gittens frá Borussia Dortmund.

Sky Sports greinir frá því að félögin séu þó enn í viðræðum um félagaskipti leikmannsins.

Joao Pedro er 23 ára gamall og er enn með þrjú ár eftir af samningi við Brighton. Hann kom að 16 mörkum í 27 leikjum á nýliðnu úrvalsdeildartímabili en missti af síðustu leikjunum eftir að hann fékk beint rautt spjald gegn Brentford og var svo settur í agabann eftir að hafa lent í rifrildi við Jan Paul van Hecke á æfingasvæðinu.

Talið er að Brighton sé tilbúið til að samþykkja 60 milljón punda tilboð í leikmanninn, sem á þrjá A-landsleiki að baki fyrir Brasilíu.
Athugasemdir