Frítt eintak í N1 og ELKO
Í tilefni af EM kvenna í knattspyrnu, sem fram fer dagana 2.–27. júlí í Sviss, gefur Sportblaðið út sérlega glæsilegt og vandað 84 síðna sérblað um keppnina þar sem íslenska kvennalandsliðið er í öndvegi, en EM blaðið er ókeypis.
Í blaðinu er að finna ítarlega kynningu á öllum 16 þátttökuþjóðunum, ýmsan fróðleik um EM, auk viðtala við stjörnur mótsins, þar á meðal, Alexia Putellas í spænska landsliðinu og Alessiu Russo og Beth Mead úr enska landsliðinu. Stærstu efnistök blaðsins snúa þó að sjálfsögðu að stelpunum okkar í íslenska landsliðinu, viðtöl við leikmenn, þjálfara og fleira, þar sem stemningin fyrir mótinu er tekin föstum tökum.
EM blaðið er ókeypis, en hægt er að nálgast eintak í verslunum ELKO og þjónustumiðstöðvum N1 um land allt og víðar á meðan birgðir endast. Það verður því auðvelt fyrir alla áhugasama að grípa sitt eintak.
Sérblaðið er að hluta unnið í samstarfi við útgefendur breska knattspyrnutímaritsins FourFourTwo, sem eru í fyrsta skipti að gefa út sérblað tileinkað EM kvenna og þá er ELKO, N1 og RÚV hluti af teyminu. Auk þess var KSÍ Sportblaðinu innan handar.
Ritstjóri EM blaðsins er Valdimar Tryggvi Kristófersson. „Það er auðvelt að verða hugsi yfir því hvað íslenska kvennalandsliðið hefur áorkað. Að þjóð með aðeins um 400.000 íbúa skuli eiga fast sæti meðal þeirra bestu í Evrópu segir allt sem segja þarf um metnað, vinnusemi og gæði þessara frábæru leikmanna, sem verður einstaklega gaman að fylgjast með í Sviss,“ segir hann og bætir við: „Það ætti enginn að verða svikinn af EM blaðinu enda fullt af fróðleik og skemmtilegu efni tengdu EM og íslenska landsliðinu. Þetta er eigulegt blað sem stuðningsmenn Íslands og knattspyrnuáhugafólk um allt land munuvonandi njóta og fletta fram og til baka."
Leikir Íslands á EM
2. júlí, Ísland - Finnland
6. júlí, Ísland - Sviss
10. júlí, Ísland - Noregur
Athugasemdir