
Lidija Stojkanovic, þjálfari kvennalandsliðs Serbíu, segir að það hafi verið sérstök tilfinning að stýra liði sínu gegn Íslandi í vináttulandsleik í gær.
Leikurinn endaði með 1-3 sigri Íslands en Lidija ræddi við Fótbolta.net eftir leikinn í gær. Hún fór fram á að ræða við fréttamann Fótbolta.net á íslensku en hún hefur ekki gleymt miklu þó hún hafi ekki búið á Íslandi í nokkur ár núna.
Leikurinn endaði með 1-3 sigri Íslands en Lidija ræddi við Fótbolta.net eftir leikinn í gær. Hún fór fram á að ræða við fréttamann Fótbolta.net á íslensku en hún hefur ekki gleymt miklu þó hún hafi ekki búið á Íslandi í nokkur ár núna.
Lidija tók við serbenska landsliðinu undir lok síðasta árs eftir að hafa verið að þjálfa U19 landsliðið. Hún varð fyrir nokkru síðan fyrsta serbneska konan til að fá UEFA Pro þjálfararéttindi.
Lidija spilaði á Íslandi frá 2005 til 2011 með HK/Víkingi og Fylki. Þá lék hún einnig hér sumarið 2014 með HK/Víkingi. Hún hóf þjálfaraferil sinn á Íslandi í yngri flokkum Víkings árið 2006. Hún varð síðar meir aðstoðarþjálfari HK/Víkings og þjálfari HK.
„Þetta var ágætur leikur hjá okkur. Það vantaði ellefu leikmenn hjá okkur sem spiluðu í Þjóðadeildinni. Ég var að prófa nýja leikmenn. Þetta var ekki beint frábær tímasetning fyrir okkur þar sem margir af mínum leikmönnum eru í fríi núna," sagði Lidija en Serbía er ekki að fara á EM.
„Ég kallaði inn nýja leikmenn sem eru flestar fæddar 2005 og 2006, og spiluðu með unglingalandsliðinu á EM í fyrra. Ég er bara ánægð. Ísland er með mjög góða leikmenn og mjög sterkt lið. Við þurfum að spila á móti svona sterkum liðum og prófa leikmenn til að sjá hverjar geta spilað í næstu keppnisleikjum."
Þrátt fyrir að Serbía hafi tapað leiknum 1-3, þá geta þær tekið eitthvað jákvætt úr þessum leik.
„Það voru bara fimm leikmenn sem spiluðu í Þjóðadeildinni í byrjunarliðinu. Það voru hafsentarnir, tveir miðjumenn og markvörðurinn. Fyrstu tvö mörkin sem við fengum á okkur voru einstaklingsmistök. Ég held að við verðum betri í næsta leik sem við spilum á þriðjudaginn."
Sérstakt að mæta Íslandi
Hvernig var að mæta Íslandi, var það sérstakt?
„Þetta var mjög sérstakt fyrir mig. Ég hlakka alltaf til að hitta íslenska þjálfara og leikmenn. Þetta er allt frábært fólk. Ég óska Íslandi góðs gengis á EM og ég hef fulla trú á því að Ísland geti komist áfram. Ekki bara áfram, ég held að þær geti unnið riðilinn sinn. Þetta er frábært lið, frábært þjálfarateymi og þarna er frábært starfsfólk," segir Lidija.
Sveindís Jane Jónsdóttir var í miklum ham í gær og serbnesku leikmennirnir áttu í erfiðleikum með hana.
„Ísland er með frábæra leikmenn og sérstaklega Sveindísi Jane. Líka markvörðurinn Cecilía Rán sem er frábær og Glódís Perla er besti varnarmaðurinn í heiminum. Það er fullt af góðum leikmönnum frá Íslandi og þetta er frábært lið," sagði Lidija.
Markmiðið að koma Serbíu á stórmót
Það hefur ekki verið sérlega mikill áhugi á kvennaboltanum í Serbíu hingað til og hefur landsliðið þeirra aldrei farið á stórmót. Lidija vonast til að hægt verði að breyta því á næstu árum.
„Ég var í sex ár með U19 landsliðið og tók við A-landsliðinu í desember síðastliðnum. Ég byrjaði í janúar að vinna með A-landsliðinu í janúar og þekki flesta leikmennina sem hafa verið hjá mér í U19. Við erum með nokkra eldri leikmenn líka. Ég er mjög ánægð með starfið. Hópurinn er frábær," segir Lidija.
„Ég get sagt að Serbía er á uppleið," segir hún jafnframt en liðið komst nýverið upp í A-deild Þjóðadeildarinnar undir stjórn Lidiju. „Stefnan er að komast á stórmót. Við höfum verið að spila vel og vonandi kemst Serbía á EM 2029."
Í lokin; langar þér einhvern tímann að þjálfa aftur á Íslandi í framtíðinni og kannski landsliðið þar?
„Já, af hverju ekki? Ég elska Ísland og fólkið þar. Ég á marga góða vini og fótboltinn þar er sterkur. Þetta er mitt annað heimili og ég elska Ísland," sagði Lidija að lokum.
Athugasemdir