
Aron Ingi Magnússon er búinn að skrifa undir nýjan samning við Þór sem gildir út keppnistímabilið 2027, eða í tvö og hálft ár.
Aron Ingi er algjör lykilmaður í sterku liði Þórs sem stefnir á langþráða endurkomu í efstu deild. Þórsarar eru í efri hluta Lengjudeildarinnar sem stendur, fimm stigum á eftir toppliði ÍR.
Aron er fæddur 2004 og hefur spilað alla leiki Þórs í sumar. Hann er kominn með eitt mark í deild og eitt í bikar. Hann skoraði eitt og lagði tvö upp í stórsigri gegn Fjölni í gærkvöldi.
Hann þykir gríðarlega efnilegur og spilaði 4 leiki fyrir U19 landslið Íslands, en hann á í heildina 95 meistaraflokksleiki að baki fyrir Þór.
Tímabilið 2022-23 lék hann á láni með unglingaliði Venezia á Ítalíu, en nokkrir Íslendingar hafa fengið tækifæri með meistaraflokki Feneyinga.
Athugasemdir