Sunderland er búið að ná samkomulagi við RC Strasbourg um kaup á senegalska miðjumanninum Habib Diarra.
Sunderland greiðir 30 milljónir punda fyrir leikmanninn sem er 21 árs gamall.
Diarra var eftirsóttur af ýmsum úrvalsdeildarfélögum og endar á að skipta til nýliða Sunderland. Leeds United og Aston Villa voru einnig orðuð við leikmanninn.
Diarra er með 4 mörk í 11 landsleikjum fyrir Senegal en hann lék fyrir Frakkland upp yngri landsliðin.
Hann er annar miðjumaðurinn sem Sunderland kaupir í sumar eftir Enzo Le Fée, sem lék með liðinu á láni á síðustu leiktíð og stóð sig vel.
Diarra á að fylla í skarðið sem Jobe Bellingham skilur eftir með félagaskiptum sínum til Borussia Dortmund.
Athugasemdir