Bournemouth vill 70 milljónir punda fyrir Semenyo - Mörg félög á eftir Elliott - Branthwaite framlengir við Everton
   lau 28. júní 2025 07:40
Ívan Guðjón Baldursson
Morata búinn að samþykkja samning hjá Como
Reyna við Schjelderup og Rodríguez
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Ítalska félagið Como er í stórsókn á leikmannamarkaðinum í sumar eftir flott fyrsta tímabil í Serie A deildinni.

Cesc Fábregas hefur verið að standa sig feykilega vel sem þjálfari liðsins og hafnaði samningstilboðum frá stórliðum til að vera áfram hjá Como í sumar.

Hann á sjálfur lítinn hlut í félaginu og hefur gert kröfur um að félagið fjárfesti í liðinu til að geta barist um sæti í efri hluta ítölsku deildarinnar.

Como er þegar búið að kaupa Martin Baturina, Álex Valle og Fellipe Jack í sumar og ætlar að bæta fleiri leikmönnum við sig.

Þessa dagana er félagið er í viðræðum um kaup á Álvaro Morata, Andreas Schjelderup og Jesús Rodríguez.

Morata, 32 ára, er fyrirliði spænska landsliðsins en er ekki lengur með byrjunarliðssæti hjá tyrkneska stórveldinu Galatasaray. Hann leikur þar á lánssamningi frá AC Milan með kaupmöguleika og er Como að reyna að taka yfir þann samning.

Milan hefur gefið grænt ljóst sem og leikmaðurinn sjálfur, svo nú eru stjórnendur Como að bíða eftir að Galatasaray taki ákvörðun.

Þá er Schjelderup 21 árs kantmaður frá Noregi sem hefur verið eftirsóttur af nokkrum af stærstu félagsliðum Evrópu að undanförnu. Hann leikur fyrir Benfica og er sagður vera efstur á óskalistanum hjá Como.

Fabrizio Romano greinir frá þessu og bætir við að Como sé búið að ná samkomulagi við Real Betis og Jesús Rodríguez um kaup á táningnum öfluga.

Como greiðir tæplega 30 milljónir evra í heildina fyrir Rodríguez, sem er 19 ára kantmaður. Hann kom að 9 mörkum í 44 leikjum með Real Betis á síðustu leiktíð.

Til samanburðar kom Schjelderup að 13 mörkum í 39 leikjum með Benfica á síðustu leiktíð.

Romano hefur sett „here we go!" stimpilinn á félagaskipti Jesús Rodríguez.
Athugasemdir
banner