Sænska Íslendingaliðið Halmstad tapaði fyrir Hammarby, 2-0, í sænsku úrvalsdeildinni í dag en þetta var áttunda tap Halmst á tímabilinu.
Gísli Eyjólfsson var á bekknum hjá Halmstad en kom ekkert við sögu á meðan Birnir Snær Ingason var utan hóps fjórða leikinn í röð.
Birnir hefur lýst yfir vonbrigðum sínum með spiltímann og hefur verið greint frá því að honum sé frjálst að fara frá félaginu. Hann hefur verið orðaður við bæði Val og Víking hér heima og einnig félög í Noregi og Svíþjóð.
Halmstad hefur gengið illa að sækja stig á tímabilinu og er sem stendur í 13. sæti með 13 stig eftir þrettán leiki.
Óskar Borgþórsson var ekki í hópnum hjá Sogndal sem gerði markalaust jafntefli við Lilleström í norsku B-deildinni og er ástæða fyrir því. Óskar er nefnilega á leið til Víkings á næstu dögum og ef allt gengur snurðulaust fyrir sig verður hann kominn með leikheimild 17. júlí.
Hinrik Harðarson var ónotaður varamaður á bekknum hjá Odd sem gerði 2-2 jafntefli við Start. Odd er í 6. sæti með 19 stig.
Ólafur Guðmundsson byrjaði hjá Álasundi sem gerði 1-1 jafntefli við Skeid. Davíð Snær Jóhannsson kom inn af bekknum í síðari hálfleik. Álasund er í 9. sæti með 18 stig.
Athugasemdir