Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
   fös 27. júní 2025 12:11
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gummi Kri: Mætum með kassann úti, standpínu og tökum vel á þeim
Fyrirliði Stjörnunnar er klár í slaginn.
Fyrirliði Stjörnunnar er klár í slaginn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í leik með Breiðabliki gegn Stjörnunni 2010. Þarna er Gummi á móti Þorvaldi Árnasyni.
Í leik með Breiðabliki gegn Stjörnunni 2010. Þarna er Gummi á móti Þorvaldi Árnasyni.
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Klukkan 19:15 hefst stórleikur Stjörnunnar og Breiðabliks í 13. umferð Bestu deildarinnar. Leikurinn fer fram á Samsungvellinum í Garðabæ.

Fótbolti.net ræddi við fyrirliða Stjörnunnar, Guðmund Kristjánsson, en hann er einmitt uppalinn hjá Breiðabliki. Hvernig líst Gumma á leikinn?

Lestu um leikinn: Stjarnan 0 -  0 Breiðablik

„Mér líst hrikalega vel á þennan leik, Blikaleikirnir eru yfirleitt með skemmtilegri leikjum sem við spilum. Það er oft mikið maður á mann í þessum leikjum og skemmtilegir hlutir sem gerast - háspennuleikir," segir Gummi.

„Ég held að þetta hafa yfirleitt verið mikil skemmtun fyrir áhorfendur, leikir sem ég hlakka til að spila. Sérstaklega núna þegar það er stutt á milli liðanna. Við getum náð þeim og það er mikil gulrót fyrir okkur að halda þessu góða gengi áfram, mætum með kassann úti, standpínu og tökum vel á þeim."

Gummi hefur aðeins misst út vegna meiðsla en hann segir að skrokkurinn sé góður. „Hann er fínn bara, búinn að vera í smá brasi inn á milli með skrokkinn en hann er bara fínn núna," segir fyrirliðinn.
Athugasemdir
banner