Arsenal hefur endurvakið áhuga sinn á nígeríska sóknarmanninum Ademola Lookman, sem er á mála hjá Atalanta í Tyrklandi.
Enska félagið hélt viðræður við Atalanta um Lookman í ágúst á síðasta ári en ákvað að fara ekki með þær alla leið.
Ítalski blaðamaðurinn Alfredo Pedúlla segir nú að Arsenal ætli sér aftur í viðræður um leikmanninn sem er falur fyrir um það bil 40 milljónir punda.
Lookman skoraði þrennu er Atalanta vann úrslitaleik Evrópudeildarinnar á síðasta ári og átti þá annað gott tímabil með ítalska liðinu á nýafstaðinni leiktíð.
Samkvæmt Pedúlla er Lookman sagður tilbúinn til að snúa aftur til Englands, þar sem hann er fæddur og uppalinn.
Á síðustu leiktíð skoraði hann 20 mörk er Atalanta hafnaði í 3. sæti Seríu og hjálpaði liðinu að komast í úrslitakeppni Meistaradeildar Evrópu.
Athugasemdir