Svissneski miðjumaðurinn Ardon Jashari hefur verið eftirsóttur af nokkrum félagsliðum síðustu mánuði og leiðir ítalska stórveldið AC Milan kapphlaupið um leikmanninn sem stendur.
Jashari er lykilmaður í liði Club Brugge og hefur belgíska félagið hafnað nokkrum tilboðum í leikmanninn í sumar.
Milan hefur boðið hæst hingað til, 32 milljónir evra, en Brugge er talið vilja fá minnst 40 milljónir til að selja Jashari.
Jashari ræddi við stjórnendur Brugge í dag og tjáði þeim að hann vildi vera seldur frá félaginu. Ef félagið heldur áfram að hafna tilboðum í hann er mögulegt að leikmaðurinn biðji opinberlega um að vera seldur.
Leikmaðurinn er búinn að gefa munnlegt samþykki fyrir samningi hjá AC Milan.
24.06.2025 23:40
Bjóða 30 milljónir fyrir Ardon Jashari
Athugasemdir