Klukkan 18:30 í kvöld tekur KA á móti Val í 13. umferð Bestu deildarinnar. Spilað verður á Greifavellinum við KA heimilið á Akureyri.
Það vantar mörk í lið KA, það hefur gengið illa að skora framan af tímabili. Þá auðvelt að horfa í markaskorarann mikla, Viðar Örn Kjartansson, sem er í leikmannahópi KA. Hann er ekki kominn á blað á þessu tímabili. Fótbolti.net ræddi við Hallgrím Jónasson, þjálfara KA, í gær og var hann spurður út í Viðar.
Viðar hefur sjálfur sagt, í gegnum ferilinn, að hann virkar best þegar hann hefur fengið að byrja leiki. Það hefur ekki verið raunin í síðustu leikjum. Hann hefur byrjað fimm leiki á tímabilinu og komið sex sinnum inn á.

Lestu um leikinn: KA 0 - 0 Valur
Þú vilt væntanlega fá þinn aðalframherja í gang?
„Það er rétt að hann er ekki kominn á blað, hann var í byrjun þegar við áttum aðeins erfitt, svo er hann tvisvar búinn að detta út; fengið í kálfann og lærið. Hann hefur ekki alveg komist í gang. En hann komst heldur betur í gang í fyrra þegar leið á tímabilið. Hann er að æfa vel og menn þurfa að grípa tækifærið. Hann er búinn að vera koma inn á í síðustu leikjum. Ásgeir (Sigurgeirsson) er búinn að standa sig vel frammi, kominn með fjögur mörk og tvær stoðsendingar," segir Haddi.
„Viðar er bara í samkeppni, er að æfa vel og er á góðum stað. Það gengur ekki alveg nógu vel að skora, eins og hjá fleirum í liðinu, og þjálfarinn þarf að taka ákvörðun. Að sjálfsögðu yrði ég ánægðasti maður í heimi ef hann, eða einhver annar, myndi fara að skora fullt af mörkum. Það er ekkert launungarmál. Við vitum hvað hann getur og vonandi fer hann að hrökkva í gang."
Athugasemdir