Bournemouth vill 70 milljónir punda fyrir Semenyo - Mörg félög á eftir Elliott - Branthwaite framlengir við Everton
   lau 28. júní 2025 08:20
Ívan Guðjón Baldursson
Fenerbahce reynir við Durán
Mynd: Al-Nassr
Mynd: EPA
Kólumbíski framherjinn Jhon Durán er gríðarlega eftirsóttur þar sem honum líður ekki vel hjá Al-Nassr í Sádi-Arabíu.

Durán hefur verið gagnrýndur fyrir slaka frammistöðu með liðinu en honum hefur þó tekist að skora 12 mörk í 18 leikjum.

Al-Nassr keypti Durán fyrir 64 milljónir punda síðasta janúar en leikmaðurinn vill flytja aftur til Evrópu þar sem honum líður ekki vel í Sádi-Arabíu.

Florian Plettenberg hjá Sky í Þýskalandi segir að Fenerbahce ætli að leggja mikið púður í að reyna að fá Durán til sín, en þessi 21 árs gamli framherji gerði frábæra hluti með Aston Villa áður en hann var keyptur til Arabíu.

José Mourinho þjálfari Fenerbahce hefur miklar mætur á Durán en óljóst er hvort tyrkneska stórveldið hafi efni á að kaupa leikmanninn.

Ensk úrvalsdeildarfélög á borð við West Ham, Fulham og Wolves hafa verið nefnd til sögunnar sem áhugasöm um að kaupa leikmanninn.

Durán er á ofurlaunum hjá Al-Nassr og gildir samningur hans við félagið næstu fimm árin.

Mögulegt er að Fenerbahce reyni að fá Durán til sín á lánssamningi með kaupmöguleika. Hann fær 320 þúsund pund í skattfrjáls vikulaun hjá Al-Nassr.
Athugasemdir
banner
banner
banner