Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
   fös 27. júní 2025 12:54
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stara Pazova
Þjálfari Serbíu sagði Ísland vera sitt annað heimili
Icelandair
EM KVK 2025
Lidija Stojkanovic.
Lidija Stojkanovic.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ísland spilar við Serbíu í vináttulandsleik í Stara Pazova í kvöld. Þetta er síðasti leikur íslenska liðsins fyrir EM í Sviss.

Það vekur athygli að þjálfari Serbíu er Íslandsvinur mikill; Lidija Stojkanovic er tekin við liðinu.

Hún tók við serbenska landsliðinu undir lok síðasta árs eftir að hafa verið að þjálfa U19 landsliðið. Hún varð fyrir nokkru síðan fyrsta serbneska konan til að fá UEFA Pro þjálfararéttindi.

Lidija spilaði á Íslandi frá 2005 til 2011 með HK/Víkingi og Fylki. Þá lék hún einnig hér sumarið 2014 með HK/Víkingi. Hún hóf þjálfaraferil sinn á Íslandi í yngri flokkum Víkings árið 2006. Hún varð síðar meir aðstoðarþjálfari HK/Víkings og þjálfari HK.

Hún ræddi við Fótbolta.net fyrir einvígi Íslands og Serbíu í Þjóðadeildinni í fyrra og sagði þá Ísland væri sitt annað heimili.

„Þetta verður mjög sérstakt einvígi fyrir mig. Ég stýrði nýverið U19 landsliðinu gegn Íslandi en Ísland er mitt annað land og mitt annað heimili," sagði Lidija við Fótbolta.net.

Núna er hún tekin við serbneska landsliðinu sem mætir því íslenska í kvöld. Fróðlegt verður að sjá hvernig sá leikur fer. Lidija hefur farið vel af stað með lið Serbíu og kom hún því upp í A-deild Þjóðadeildarinnar á dögunum.
Athugasemdir