Jóhann Árni Gunnarsson hefur verið að spila virkilega vel með Stjörnunni í undanförnum leikjum og í vikunni framlengdi hann samning sinn við félagið.
Fótbolti.net ræddi við Jökul Elísabetarson, þjálfara Stjörnunnar, í gær en í kvöld fer fram stórleikur Stjörnunnar og Breiðabliks á Samsungvellinum. Leikurinn hefst 19:15.
Hversu gott er að fá Jóhann Árna á svona flug?
Fótbolti.net ræddi við Jökul Elísabetarson, þjálfara Stjörnunnar, í gær en í kvöld fer fram stórleikur Stjörnunnar og Breiðabliks á Samsungvellinum. Leikurinn hefst 19:15.
Hversu gott er að fá Jóhann Árna á svona flug?
Lestu um leikinn: Stjarnan 0 - 0 Breiðablik
„Það er bara frábært, Jóhann Árni hefur verið að spila vel, en ég veit ekki hvort að allir átti sig á því að hann er að hlaupa mest í liðinu. Þó að hann sé að spila að einhverju leyti fremst af miðjumönnunum, þó að þeir séu svolítið hreyfanlegir út um allt, þá er hann að hlaupa mest í liðinu. Hann er fjarri því að gera sig að einhverjum lúxusleikmanni þó að hann sé að spila framarlega. Hann er að vinna rosalega vel fyrir liðið og það ýtir honum út í þetta."
Guðmundur Baldvin Nökkvason hefur líka verið að spila virkilega vel í síðustu leikjum og hefur heyrst frá því að áhugi sé á honum í Noregi. Hversu vel er hann að spila á þessum tímapunkti?
„Hann er bara að spila frábærlega, eins og hann gerir nú bara yfirleitt. Hann vinnur vel fyrir liðið, er hreyfanlegur og heldur góðu og réttu floti á spilinu."
„Kjartan (Már Kjartansson) hefur verið 'outstanding' á miðjunni. Hann stífnaði aðeins á móti Val og fór út af, frammistaða hans var þannig að menn voru ekki að ráða við hann, hvorki Valur né KA áður en hann dettur út á móti Val."
„Það er ekki hægt að taka einhverja aðra fram yfir Alex Þór (Hauksson) heldur. Þeir eru bara að gera vel. Þeir eru allir góðir í fótbolta en það sem er að skila frammistöðunni hjá þeim og öllu liðinu er að þeir eru tilbúnir að vinna."
„Menn eru tilbúnir að vinna, hvort sem það er á æfingum, í taktík, á fundum, eða að fara út að hlaupa til þess að auka líkurnar á að liðið spili vel. Menn eru tilbúnir í þetta. Það er ekki bara 1-2 í liðinu, heldur allir, fremstu menn eru að hlaupa rosalega sem dæmi. Þetta er bara vinna, það er það sem er að skila góðri frammistöðu," segir Jökull.
Athugasemdir