Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
   fös 27. júní 2025 23:20
Ívan Guðjón Baldursson
Funduðu með La Liga vegna kauptilboðs Barcelona
Mynd: EPA
Kantmaðurinn efnilegi Nico Williams ætlar að skipta um félag í sumar eftir að hafa gert frábæra hluti fyrir uppeldisfélag sitt Athletic Bilbao á síðustu árum.

Williams er eftirsóttur af stærstu félagsliðum Evrópu og er búinn að velja Barcelona framyfir FC Bayern og Arsenal sem hafa reynt að kaupa hann.

Joan Laporta forseti Barcelona segir að félagið ætli að virkja riftunarákvæðið í samningi Williams sem nemur 58 milljónum evra, en stjórnendur Athletic Bilbao eru ekki spenntir fyrir því að selja leikmanninn til samkeppnisaðila í spænsku deildinni.

Stjórnendur Athletic skilja ekki hvernig Barcelona getur leyft sér að halda áfram að kaupa leikmenn og semja við þá án þess að brjóta fjárhagsreglur La Liga. Þeir ákváðu þess vegna að funda með stjórnendum La Liga á dögunum og greindu frá áhyggjum sínum útaf þessu máli.

Athletic hefur staðfest þetta með tilkynningu sem segir meðal annars að félagið sé staðráðið í því að gæta eigin hagsmuna með því að ganga úr skugga um að allir keppinautar sínir fari eftir settum reglum.
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Barcelona 38 28 4 6 102 39 +63 88
2 Real Madrid 38 26 6 6 78 38 +40 84
3 Atletico Madrid 38 22 10 6 68 30 +38 76
4 Athletic 38 19 13 6 54 29 +25 70
5 Villarreal 38 20 10 8 71 51 +20 70
6 Betis 38 16 12 10 57 50 +7 60
7 Celta 38 16 7 15 59 57 +2 55
8 Osasuna 38 12 16 10 48 52 -4 52
9 Vallecano 38 13 13 12 41 45 -4 52
10 Mallorca 38 13 9 16 35 44 -9 48
11 Valencia 38 11 13 14 44 54 -10 46
12 Real Sociedad 38 13 7 18 35 46 -11 46
13 Alaves 38 10 12 16 38 48 -10 42
14 Getafe 38 11 9 18 34 39 -5 42
15 Espanyol 38 11 9 18 40 51 -11 42
16 Sevilla 38 10 11 17 42 55 -13 41
17 Girona 38 11 8 19 44 60 -16 41
18 Leganes 38 9 13 16 39 56 -17 40
19 Las Palmas 38 8 8 22 40 61 -21 32
20 Valladolid 38 4 4 30 26 90 -64 16
Athugasemdir
banner
banner