Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
banner
   fös 27. júní 2025 15:49
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Stara Pazova
Byrjunarlið Íslands - Spilar 137. landsleikinn á stórafmæli sínu
Icelandair
EM KVK 2025
Glódís Perla, sem er þrítug, byrjar og Sandra María kemur aftur inn í liðið.
Glódís Perla, sem er þrítug, byrjar og Sandra María kemur aftur inn í liðið.
Mynd: KSÍ
Guðrún og Hlín byrja báðar.
Guðrún og Hlín byrja báðar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Núna er rúmur klukkutími í síðasta leik Íslands fyrir EM. Búið er að opinbera byrjunarlið Íslands í leiknum og ætti það mögulega að gefa einhverjar vísbendingar fyrir fyrsta leik á EM.

Fyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir er þrítug í dag og fagnar afmæli sínu með því að spila sinn 137. landsleik fyrir Ísland.



Annars er fátt sem kemur á óvart í liðsvalinu. Það eru tvær breytingar frá tapinu gegn Frakklandi á dögunum en Sandra María Jessen, leikmaður Þórs/KA, kemur inn fyrir Öglu Maríu Albertsdóttur, leikmann Breiðabliks, og Hildur Antonsdóttir kemur inn fyrir Dagnýju Brynjarsdóttur.
Athugasemdir