Bournemouth vill 70 milljónir punda fyrir Semenyo - Mörg félög á eftir Elliott - Branthwaite framlengir við Everton
   lau 28. júní 2025 19:20
Ívan Guðjón Baldursson
Quansah í læknisskoðun eftir helgi
Mynd: EPA
Varnarmaðurinn Jarell Quansah fer í læknisskoðun hjá Bayer Leverkusen eftir helgi og verður svo kynntur til leiks sem nýr leikmaður félagsins.

Þýska stórveldið er að borga um 35 milljónir punda til að kaupa Quansah úr röðum Liverpool, en Englandsmeistararnir eru með endurkaupsrétt á leikmanninum fyrir 60 milljónir.

Quansah er 22 ára gamall og leikur sem miðvörður að upplagi en er einnig öflugur sem hægri bakvörður.

Hann kom við sögu í 25 leikjum með Liverpool á síðustu leiktíð og vonast til að fá meiri spiltíma hjá nýju félagi. Hann hefur í heildina spilað 58 leiki á tveimur árum með meistaraflokki Liverpool.

Quansah er uppalinn í Liverpool og hefur verið mikilvægur hlekkur upp yngri landslið Englands. Hann á 35 leiki að baki fyrir þjóð sína.

   22.06.2025 10:40
Quansah á leið til Leverkusen - Liverpool getur keypt hann til baka

Athugasemdir
banner
banner