Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
   fös 27. júní 2025 19:40
Ívan Guðjón Baldursson
Noa Lang kominn með samkomulag við Napoli
Meret framlengir
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Kantmaðurinn knái Noa Lang er búinn að tilkynna stjórnendum PSV Eindhoven að hann sé kominn með munnlegt samkomulag við Ítalíumeistara Napoli.

Lang er 26 ára gamall og er uppalinn hjá Ajax, þar sem hann var samherji Kristians Nökkva Hlynssonar í skamman tíma.

Lang er búinn að samþykkja fimm ára samning hjá Napoli en félagið á eftir að ná samkomulagi við PSV um kaupverð.

PSV vill fá 35 milljónir til að selja Lang auk 10% af endursölurétti leikmannsins. Napoli er búið að bjóða 30 milljónir evra til að kaupa leikmanninn, en talið er að PSV muni hafna því tilboði.

Lang er með 14 landsleiki að baki fyrir hollenska landsliðið og kom með beinum hætti að 26 mörkum í 44 leikjum með PSV á síðustu leiktíð.

Markvörðurinn Álex Meret er þá búinn að framlengja samning sinn við Napoli til 2027.

Meret hefur spilað 212 leiki fyrir Napoli og er búinn að vera aðalmarkvörður liðsins síðustu þrjú ár. Hann er 28 ára gamall og hefur spilað þrjá A-landsleiki fyrir Ítalíu.


Athugasemdir
banner