Bournemouth vill 70 milljónir punda fyrir Semenyo - Mörg félög á eftir Elliott - Branthwaite framlengir við Everton
   lau 28. júní 2025 13:45
Brynjar Ingi Erluson
Vill byggja liðið í kringum Albert, De Gea og Kean
Albert og Moise Kean náðu vel saman á síðasta tímabili
Albert og Moise Kean náðu vel saman á síðasta tímabili
Mynd: EPA
Stefano Pioli er spenntur fyrir komandi tímum
Stefano Pioli er spenntur fyrir komandi tímum
Mynd: EPA
Stefano Pioli, nýr þjálfari Fiorentina, er sagður ætla að byggja liðið í kringum Albert Guðmundsson, David De Gea og Moise Kean, en þetta kemur fram á Firenze Viola.

Fiorentina ákvað að nýta kauprétt sinn á Alberti og tókst meira að segja að lækka verðmiðann niður í 13 milljónir evra þrátt fyrir að hafa verið með samkomulag upp á 17 milljónir.

Albert, sem er 28 ára gamall, kom að ellefu mörkum á fyrsta tímabili sínu með Fiorentina, en meiðsli settu strik í reikninginn.

Samkvæmt Firenze Viola er Pioli í skýjunum með að hafa haldið Alberti áfram og stefnir hann á að byggja liðið í kringum hann, David De Gea og Moise Kean.

„Félagaskiptin eru nú unnin af mikilli sérþekkingu og að hafa landað Íslendingnum hefur víkkað umhverfið og styrkt sannfæringu Pioli á liðinu. Albert er yfir meðallagi góður fótboltamaður sem hefur þann eiginleika að geta komist framhjá andstæðingnum, skorað og lagt upp fyrir aðra ásamt því að ná í aukaspyrnur, vítaspyrnur og spjöld á andstæðinga sína.“

„Það er rétt að hann hafi ekki alveg skilað því sem ætlast var af honum á fyrsta tímabili sínu, en meiðsli og skelfilegt samband hans við Palladino (fyrrum þjálfara liðsins) hjálpaði ekki. Átta mörk og þrjár stoðsendingar er samt engin skelfileg tölfræði undir þeim kringumstæðum og mun Pioli vita hvernig á að ná því allra besta úr honum. Sería A er á þeim stað að það vantar hæfileikaríka leikmenn þar sem flestir sérhæfa sig í því að senda boltann til baka, en sköpunarhæfni Alberts mun koma Fiorentina í sviðsljósið,“
segir í frétt miðilsins.

De Gea var besti markvörður Seríu A á síðasta tímabili og verður hann áfram mikilvægur liðinu. Hann á þrjú ár eftir af samningnum og ekkert sem bendir til þess að hann sé á förum.

Stærsta áskorun Fiorentina er hins vegar að halda Kean áfram í herbúðum félagsins eftir stórkostlegt síðasta tímabil. Ítalinn skoraði 25 mörk í öllum keppnum, en hann hefur verið orðaður við félög á Englandi og Sádi-Arabíu.

„Framherji landsliðsins mun geta frelsað sig frá Fiorentina milli 1. og 15. júlí en þá er 52 milljóna evra kaupákvæði hans virkt og alveg ljóst að Flórens skelfur. Arabarnir með sín himinháu samningstilboð, Arsenal og Manchester United gætu sannfært Kean, sem er samt sagður ánægður í Flórens og ekki er ekki að deyja úr löngun í að fara annað. Moise hefur verið að athuga hitastigið hjá félaginu á síðustu vikum, en það er alveg ljóst að Pioli, De Gea og Albert eru víkka sjóndeildarhringinn hjá Kean. Peningar einir og sér sannfæra ekki frábæra leikmenn heldur þarf eitthvað meira til,“ segir enn fremur í fréttinni.

Fiorentina mun enn eitt árið spila í Sambandsdeild Evrópu, en liðið fór í úrslit keppninnar 2023 og 2024, en datt út í undanúrslitum í ár. Það er spurning hvort Pioli geti tekið næsta skref og skilað titli í hús en til þess að það sé hægt þarf hann sterka hryggjarsúlu.
Athugasemdir
banner