Franski miðjumaðurinn Paul Pogba er búinn að standast læknisskoðun hjá AS Mónakó og gæti verið kynntur sem nýr leikmaður félagsins í dag eða á morgun.
Pogba er 32 ára gamall og hefur hann ekki spilað keppnisleik í tæplega tvö ár vegna leikbanns eftir að hafa fallið á lyfjaprófi, en hann spilaði heldur ekki mikið fyrir það vegna meiðsla.
Pogba var á sínum tíma talinn til allra bestu miðjumanna heims. Hann var lykilmaður í ógnarsterku liði Juventus og franska landsliðinu og skipti svo yfir til Manchester United sumarið 2016.
Hann var lykilmaður á fyrstu árunum hjá Man Utd og vann HM með Frakklandi en lenti svo í erfiðum ökklameiðslum tímabilið 2019-20 og hefur ekki verið sami leikmaður síðan.
Nú fær hann tækifæri til að reyna aftur fyrir sér á hæsta gæðastigi þar sem hann mun spila með Mónakó í Ligue 1 og Meistaradeild Evrópu.
Fyrsti æfingaleikur Mónakó á undirbúningstímabilinu fer fram 11. júlí og verður gegn Cercle Brugge.
Búist er við að Ansu Fati verði einnig kynntur til leiks sem nýr leikmaður Mónakó á næstu dögum.
27.06.2025 23:40
Pogba og Fati voru í læknisskoðun í dag
Athugasemdir