„Þetta var alltaf að fara verða erfiður leikur. Þetta var það þótt 5-2 sé ekki rétta talan á þessu, við vorum bara klínískir," sagði Adam Ægir Pálsson eftir frábæran sigur Vals gegn KA í kvöld.
Lestu um leikinn: KA 2 - 5 Valur
Adam Ægir var að byrja sinn fyrsta leik síðan hann sneri aftur í Val frá Ítalíu í apríl.
„Ég er ánægður með mína frammistöðu, gaman að ná marki í byrjun, það gefur manni oft mikið sjálfstraust, veit ekki hvort þetta voru tvær stoðsendingar en teljum það með," sagði Adam Ægir.
„Fyrst og fremst mjög sáttur með að hafa unnið, það er mikilvægast í þessu. Við erum að reyna vinna báða titlana og þá þýðir ekki að misstíga sig."
„Ég er búinn að bíða eftir þessu í smá tíma og búinn að bíða þolinmóður. Þetta er ekki búið að vera auðvelt. Það er gríðarlega sætt að vinna 5-2 þegar maður fær loksins traustið."
Athugasemdir