Liverpool er á leið í viðræður við Crystal Palace um enska miðvörðinn Marc Guehi. Mirror greinir frá.
Liverpool hefur eytt rúmum 200 milljónum punda á markaðnum í sumar og ætlar að halda því áfram.
Mirror segir að Liverpool muni hefja viðræður við Palace um Guehi á næsta sólarhringnum.
Guehi, sem verður 25 ára gamall á næstu dögum, verður samningslaus á næsta ári og vill Palace selja hann í sumar til þess að eiga ekki í hættu á að missa hann frítt næsta sumar.
Palace er talið vilja um 70 milljónir punda en það mun reynast erfitt fyrir leikmann sem er að renna út á samningi og segir Mirror að félagið muni ekki fara neðar en 40 milljónir punda þar sem Chelsea fær 20 prósent af sölunni.
Liverpool er sagt leiða kapphlaupið en að það verði þó að fullvissa Guehi um að hann verði byrjunarliðsmaður. Ef það gengur eftir verður hann líklega leikmaður Liverpool á næstu vikum.
Guehi hefur verið lykilmaður hjá Palace síðustu ár og spilaði stóra rullu er liðið varð bikarmeistari í fyrsta sinn í sögu félagsins í síðasta mánuði.
Hann á 23 A-landsleiki með Englandi og byrjaði alla leiki liðsins nema einn er það komst í úrslitaleik Evrópumótsins á síðasta ári.
Athugasemdir