Spænska ungstirnið Lamine Yamal ætlar að taka treyju númer 10 þegar Ansu Fati gengur til liðs við Mónakó í sumar.
Ansu Fati hefur verið með tíuna síðustu árin en hann heldur nú til Mónakó á lánssamningi með kaupmöguleika.
Yamal ætlar að nyta tækifærið til að hirða treyju númer 10, sem er sama treyjunúmer og Diego Armando Maradona var með á bakinu á stuttri dvöl sinni í Barcelona.
Yamal ýjaði að þessu með færslu í Instagram Story þar sem hann birti mynd af Maradona í treyju númer 10.
Yamal hefur klæðst treyju númer 19 á fyrstu árunum sínum hjá Barcelona.
Athugasemdir