Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
Halli eftir stórt tap: Vona að ég geti náð í menn ef þetta lagast ekki
Jóa fannst Grindvíkingar brotna - „Hann gerir bara svo mikið fyrir liðið"
Bergvin í gir eftir þrennu: Djöfull hlakka ég til að pakka Árna Guðna saman
Kristófer hat-trick hero: Okkar vantaði mörk og hann bað mig bara um að gera mitt
Gunnar Már: Rautt spjald, nýr markmaður og mark á okkur á sömu mínútu
Jökull: Kristófer algjörlega á deginum sinum og kláraði allt
Gústi Gylfa: Getum ekki byrjað leiki svona
Hemmi: Verður að opna töskuna og sjá hvað kemur upp
Ibrahima Balde: Fyrsta þrennan síðan ég var 16 ára gamall
Venni: Við erum með þá í lás
Haddi: Hefðum getað fengið á okkur fjögur mörk í fyrri hálfleik
Bjarni Jó: Við berjumst fyrir því að fá Jón Daða
Dóri Árna mjög léttur: Ekki gleyma Kidda Jóns
Túfa: Hann uppsker fyrir sína vinnu og þolinmæði
Cecilía: Þetta er ný regla og allir eru að læra hana
Karólína: Hún var svo reið inn á vellinum
Landsliðsþjálfarinn fékk mörg svör - „Þetta var það sem stóð til boða"
Siggi Höskulds: Ég held að Fjölnir hafi ekki fengið eitt einasta færi
Adam Ægir nýtti tækifærið í botn - „Ekki búið að vera auðvelt"
Fékk gjöfina sem hún vildi á stórafmælinu - „Er samt bara 25"
   fös 27. júní 2025 22:11
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Haddi: Hefðum getað fengið á okkur fjögur mörk í fyrri hálfleik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KA tapaði stórt gegn Val í kvöld. Fótbolti.net ræddi við Hallgrím Jónasson, þjálfara KA, eftir leikinn.

Lestu um leikinn: KA 2 -  5 Valur

„Töpum sanngjarnt fyrir Val í dag. Fyrri hálfleikurinn slær út af laginu, byrjum á því að gefa mark og svo er sjálfsmark eftir horn. Mér fannst við ekki líkir sjálfum okkur eftir það. Svo fáum við líflínu, skorum flott mark og erum 2-1 undir sem var ekkert voðalega sanngjarnt, við hefðum getað fengið á okkur fjögur mörk í fyrri hálfleik," sagði Haddi.

„Það var síðan fínn kraftur í okkur, vorum að pressa, Frederik ver glæsilega frá Jóan sem dæmi. Mér fannst við flottir á þeim kafla en það var ekki nóg."

KA mætir KR í botnslag í næstu umferð.

„Við þurfum að fara vinna fótboltaleiki. Það hafa verið mjög flottar frammistöður síðustu sex leiki en frammistaðan í dag ekki nógu góð. VIð þurfum að sleikja sárin í kvöld og svo þurfum við að sýna úr hverju við erum gerðir. Við þurfum að fá miklu betri frammistöðu en þetta ef við ætlum að fá eitthvað út úr leiknum gegn KR," sagði Haddi.
Athugasemdir
banner
banner