Austurríski varnarmaðurinn David Alaba mun ekki taka þátt á HM félagsliða með Real Madrid.
Leikmaðurinn fjölhæfi meiddist á hné fyrir um tveimur mánuðum síðan og átti að mæta aftur til leiks í útsláttarkeppni HM félagsliða.
Svo verður þó ekki vegna vöðvameiðsla sem hann varð fyrir á æfingu á dögunum. Þau munu halda honum frá keppni í einn mánuð til viðbótar.
Alaba mun því missa af útsláttarkeppni HM en ætti að vera klár í slaginn í byrjun ágúst.
Alaba er 33 ára gamall og kom aðeins við sögu í 14 leikjum með Real Madrid á tímabilinu. Hann hefur í heildina spilað 116 leiki á fjórum árum hjá félaginu og er aðeins með eitt ár eftir af samningi.
Athugasemdir