Lokaleikur Evrópumóts U21 árs landsliða fer fram í kvöld þegar England og Þýskaland eigast við í klassískum slag.
Bæði lið hafa átt frábært mót þar sem England sigraði Spán og Holland á leið sinni í úrslitaleikinn á meðan Þjóðverjar lögðu Ítali og Frakka.
Harvey Elliott var hetja Englendinga þar sem hann skoraði bæði mörkin í sigrinum gegn Hollandi á meðan Nelson Weiper, Nick Woltemade og Brajan Gruda skoruðu mörk Þjóðverja í frábærum 3-0 sigri gegn Frökkum. Noah Atubolu átti stórleik í marki Þjóðverja í þeim sigri.
Elliot Anderson, James McAtee, Tino Livramento og Jarell Quansah voru meðal byrjunarliðsmanna Englendinga í sigrinum gegn Hollandi.
Úrslitaleikurinn fer fram í Bratislava, höfuðborg Slóvakíu, og fær enska landsliðið tækifæri til að verja Evróputitilinn eftir að hafa unnið EM 2023.
Leikur kvöldsins
19:00 England U21 - Þýskaland U21
Athugasemdir