Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
   fös 27. júní 2025 22:42
Ívan Guðjón Baldursson
Brentford hafnaði öðru tilboði frá Man Utd
Bryan Mbeumo er tilbúinn til að taka næsta skref á ferlinum.
Bryan Mbeumo er tilbúinn til að taka næsta skref á ferlinum.
Mynd: EPA
Sky Sports greinir frá því að Brentford sé búið að hafna öðru tilboði frá Manchester United í kantmanninn Bryan Mbeumo.

Tilboðið hljóðaði upp á 62,5 milljónir punda, sem er sama upphæð og félagið greiddi til að kaupa Matheus Cunha frá Wolves fyrr í sumar.

Mbeumo vill ólmur skipta til Man Utd í sumar en hann er ennþá með eitt ár eftir af samningi sínum við Brentford. Félagið getur þá virkjað ákvæði til að framlengja samninginn um eitt ár í viðbót, sem þýðir að leikmaðurinn er í raun samningsbundinn til 2027.

Tottenham er meðal félaga sem hefur einnig sýnt Mbeumo áhuga en leikmaðurinn hefur verið skýr í sínum kröfum. Hann vill helst fara til Man Utd, en er þó reiðubúinn til að horfa annað ef þau félagaskipti ganga ekki upp.

Mbeumo er 25 ára gamall og kom að 28 mörkum með beinum hætti í 38 úrvalsdeildarleikjum á síðustu leiktíð.
Athugasemdir