Sunderland eru nýliðar í ensku úrvalsdeildinni og þurfa að styrkja sig fyrir komandi átök næstu leiktíðar.
Liðið er búið að selja Jobe Bellingham til Borussia Dortmund og Tom Watson til Brighton í sumar en er búið að festa kaup á Enzo Le Fée. Auk hans er Habib Diarra á leið til félagsins frá Strasbourg.
Næstur inn gæti verið Marcin Bulka, pólskur markvörður OGC Nice sem á einungis eitt ár eftir af samningi sínum við félagið.
Sunderland er í viðræðum við Nice um kaupverð, en franska félagið er sagt vilja rúmar 20 milljónir evra til að selja markvörðinn sinn.
Bulka er 25 ára gamall og kom við hjá Chelsea og PSG áður en hann skipti yfir til Nice, þar sem hann hefur verið aðalmarkvörður síðustu tvö tímabil.
Bulka hefur spilað fimm A-landsleiki fyrir Pólland og gæti verið næsti aðalmarkvörður landsliðsins eftir að Lukasz Fabianski og Wojciech Szczesny hafa lagt landsliðshanskana á hilluna.
Sunderland vill kaupa Bulka til að berjast við Anthony Patterson um byrjunarliðssætið á milli stanganna.
Athugasemdir