Bournemouth vill 70 milljónir punda fyrir Semenyo - Mörg félög á eftir Elliott - Branthwaite framlengir við Everton
   lau 28. júní 2025 12:32
Brynjar Ingi Erluson
Stjórnarformaður Liverpool vonsvikinn með ákvörðun Trent
Mynd: EPA
Mynd: EPA
Tom Werner, stjórnarformaður Liverpool, segist deila vonbrigðum sínum með stuðningsmönnum félagsins varðandi brottför enska varnarmannsins Trent Alexander-Arnold.

Trent tók ákvörðun um að yfirgefa Liverpool þegar samningur hans rann út eftir tímabilið.

Englendingurinn er fæddur og uppalinn í Liverpool-borg, og hafði spilað með Liverpool frá blautu barnsbeini, en samband hans við stuðningsmenn súrnaði á þessu ári þegar hann neitaði að skrifa undir nýjan samning.

Werner segist vonsvikinn með að Trent sé farinn en hann ber honum hins vegar söguna vel og er þakklátur fyrir framlag hans til félagsins.

„Við virðum það að Trent sé farinn frá félaginu. Nýlega sagði ég einhverjum sögu af því þegar ég hitti Trent í síðustu umferð tímabilsins. Billy Hogan (framkvæmdastjóri Liverpool) var með mér og ég vildi bara að Trent vissi það að við og félagið værum afar þakklát fyrir framlag hans.“

„Hann sýndi mér mynd af því þegar hann var sjö ára gamall og bara ungur strákur í akademíunni. Ég hugsa með hlýjum hug fyrir allt sem hann hefur gert fyrir félagið, en nú er tími fyrir hann til að fara annað og fyrir okkur til að finna mann í hans stað.“

„Við óskum honum góðs gengis og skiljum líka tilfinningar stuðningsmanna sem voru vonsviknir. Við vorum það líka, en yndislegar minningar mínar um hann varpa skugga á það.“

„Ég mun aldrei gleyma þessari sendingu sem hann átti, hornið sem hann tók þegar við skoruðum fjórða markið gegn Barcelona. Svona gera bara snillingar. Að skoða nokkrar af stoðsendingum hans og hvernig hann gat sent boltann hnitmiðað á einhvern 30 metra í burtu og skapað mark var bara...það er ekki furða að Real Madrid hafi verið í skýjunum með að fá hann,“
sagði Werner við Liverpool Echo.
Athugasemdir
banner