Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
   fös 27. júní 2025 11:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Tölfræðin góð en vantar að koma boltanum inn - „Erum komnir á miklu betri stað"
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA.
Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Góð frammistaða í síðustu leikjum en fá stig.
Góð frammistaða í síðustu leikjum en fá stig.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Fyrirliðinn ekki með.
Fyrirliðinn ekki með.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tryggvi Hrafn var mjög góður gegn KR.
Tryggvi Hrafn var mjög góður gegn KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valsarar mæta norður í dag.
Valsarar mæta norður í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér líst vel á þennan leik, við erum búnir að vera góðir undanfarið finnst okkur; bæði finnst okkur það og tölfræðin styður það. Við vorum mjög flottir á móti Víkingi og mér fannst við mjög flottir á móti Vestra. Mér finnst allt annar bragur á okkur núna samanborið við í byrjun tímabils. Þá vorum við að spila erfiða leiki á móti stórum liðum og áttum ekki mikinn séns, núna erum við komnir á miklu betri stað. Við förum kokhraustir í þennan leik," segir Hallgrímur Jónasson, þjálfari KA, við Fótbolta.net.

Í kvöld, klukkan 18:30, mætir KA liði Vals í 13. umferð Bestu deildarinnar á Greifavellinum.

Þrátt fyrir góða spilamennsku í síðustu tveimur leikjum hefur KA ekki fengið nein stig. Liðið situr í 11. sæti með tólf stig eftir tólf umferðir.

Góð frammistaða í þessum leikjum, en það er þetta að koma boltanum í netið, ertu búinn að finna lausn á því í vikunni?

„Það verður að koma í ljós í leiknum. Við erum í topp fimm í flestum skotum ef horft er í tölfræðina, flest horn í deildinni og flesta krossa í deildinni. Við erum að koma okkur í færin, erum að komast vel inn á síðasta þriðjung, erum með fjórðu flestu snertingarnar inn á vítateig andstæðinganna í deildinni. Okkur vantar svolítið að koma boltanum inn og það fer vonandi að koma hjá okkur. Eins og menn vita þá er engin galdralausn, eða einhver ein sérstök æfing sem gerir það að verkum að menn skori allt í einu. En ég er með hörku gæði í leikmönnunum mínum. Vonandi fer þetta að detta og tómatsósuáhrifin fylgja; mörkin fari að hrynja inn. Það er klárlega of lítið að vera búnir að skora tíu mörk í deildinni, alltof lítið."

Samkvæmt xG tölfræðinni ætti KA að vera búið að skora meira en 18 mörk, en raunin er einungis tíu mörk skoruð.

Jafnvægið ekki alltaf verið rétt
Það hefur verið umræða um gamla sóknarlínu og vöntun á hraða í liði KA. Hefur Haddi eitthvað um það að segja?

„Það er alveg rétt að jafnvægið hefur ekki alltaf verið alveg rétt í liðinu. Svo eru menn fljótir að finna að þetta sé ástæðan þegar hlutirnir ganga ekki upp. Það eru ekki mörg ár síðan að KR var elsta liðið í deildinni, varð Íslandsmeistari og menn tóku mynd af sér við elliheimilið Grund. Ég held að Víkingur hafi verið með elsta liðið í deildinni þegar þeir unnu titilinn. Það er vissulega verk þjálfarans að finna rétta jafnvægið í liðinu og ég er fullmeðvitaður um að við erum með elsta liðið í deildinni, það hefur ekki farið framhjá mér. Það væri annað ef við værum ekki að skapa nein færi eða ekki að komast langt á síðasta þriðjung. Við erum svo sannarlega að gera það, en það þarf að sparka boltanum inn."

Án fyrirliðans
Fyrirliðinn Ívar Örn Árnason er í leikbanni. Hvernig leysir Haddi það?

„Ég leysi það bara, það er ekkert vesen."

„Við erum með hörku hóp. Ég er að skilja eftir hörku leikmenn á bekknum. Ég hef engar áhyggjur af því þó að hann hoppi úr hóp í einn leik."


Þú ert með Marcel Römer sem kann alveg að spila hafsentinn og Rodri líka...

„Já já, ég er með kosti. Ég hef engar áhyggjur af því."

Þurfa að vera harðir og standa saman
Er eitthvað sem Haddi þarf að sjá frá sínu liði til að geta unnið Val?

„Ég vil sjá að við þorum, við erum á heimavelli, við erum búnir að tapa tveimur leikjum í deildinni á heimavelli á móti kannski bestu liðunum; Breiðabliki og Víkingi og hvorugt sanngjarnt. Við erum sterkir á heimavelli. Ég vil að menn fari út og standi saman eins og þeir hafa gert undanfarið. Við þurfum að vera harðir við þá og góðir í návígum, þá eigum við séns á að vinna Val."

„Valur er frábært lið, við unnum þá tvisvar á heimavelli í fyrra, teljum okkur vera á þeim stað í dag að við eigum góða möguleika ef við leggjum okkur fram."


Með hættulega kantmenn
Er eitthvað sérstakt sem þarf að stoppa hjá Val?

„Þeir eru mjög flottir þegar þeir ná að skipta yfir á kantana og fara þar einn á einn. Þeir eru frábærir í því, bæði Jónatan og Tryggvi. Þeir meiddu okkur þannig í fyrri leiknum og það er klárlega eitthvað sem þarf að stoppa. Svo eru þeir yfir höfuð bara gott lið, fara með fimm menn upp í hæstu línu eins og mörg lið og eru góðir fótbolta. Mér finnst þeir ekki eins 'physical' eins og Víkingarnir sem dæmi. Valsarar hafa fullt af kostum og ekkert nema gott um þá að segja. Við erum samt á því að ef við spilum okkar leik, þá eigum við góðan möguleika í leiknum," segir Haddi.


Athugasemdir
banner