Arsenal keppir við Spurs um Eze - Liverpool ræðir um Guehi - Man Utd skoðar Warren Zaire-Emery
   fös 27. júní 2025 10:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Tvær unglingalandsliðskonur náðu mögnuðum áfanga
Kvenaboltinn
Rebekka Sif
Rebekka Sif
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
U19 landslið kvenna tapaði gegn jafnöldrum sínum frá Finnlandi í æfingaleik á dögunum.

Það er áhugavert að sjá það að þær Rebekka Sif Brynjarsdóttir, leikmaður Gróttu og Fanney Lísa Jóhannesdóttir leikmaður Stjörnunnar, komu við sögu í leiknum gegn Finnum.

Þær eru báðar fæddar 2009 en þær hafa spilað með U16, U17 og nú U19 landsliðinu á þessu ári.

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er Arsenal að fylgjast með Fanneyju Lísu sem hefur komið við sögu í sjö leikjum í Bestu deildinni í sumar. Rebekka hefur komið við sögu í sjö leikjum í Lengjudeildinni og skorað fjögur mörk.
Athugasemdir
banner