Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
   fös 17. apríl 2026 21:29
Kári Snorrason
Gísli Eyjólfs: Þegar línan hjá dómaranum er svona þá myndast auðvitað hiti
Sneri aftur á Kópavogsvöll.
Sneri aftur á Kópavogsvöll.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég hefði átt að nýta þessi tvö færi sem ég fékk og þá hefði þetta farið öðruvísi.“
„Ég hefði átt að nýta þessi tvö færi sem ég fékk og þá hefði þetta farið öðruvísi.“
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik vann 1-0 sigur á ÍA í 2. umferð Bestu deildarinnar fyrr í kvöld. Þá sneri Gísli Eyjólfsson aftur á Kópavogsvöll eftir um tveggja ára fjarveru.

Í þetta sinn klæddist hann gulri Skagatreyju í stað grænu Blikatreyjunnar. Hann gekk til liðs við ÍA fyrr í vetur eftir veru hjá Halmstads í Svíþjóð. Þar áður hafði hann verið lykilmaður í liði Breiðabliks. Gísli ræddi við Fótbolta.net að leik loknum.

Lestu um leikinn: Breiðablik 1 -  0 ÍA

„Leiðinlegt að tapa, svekkjandi. Sérstaklega í ljósi þess hvernig við komum út í seinni hálfleikinn. Þeir áttu fyrri hálfleikinn. Ég hefði átt að nýta þessi tvö færi sem ég fékk og þá hefði þetta farið öðruvísi. Stundum er þetta svona; Stöngin út.“

Hvernig var að mæta aftur á Kópavogsvöll?

„Það var gaman. Fínt andrúmsloft hérna. Svo er þetta eins og hver annar leikur.“

Gísli var spurður um þann mikla hita sem var í leiknum.
„Ég nenni ekki að fara tuða um þetta en þegar línan hjá dómaranum er svona þá auðvitað myndast hiti. Ég held að það sé eðlilegt,“ sagði Gísli og var spurður nánar út í hvað hann væri ósáttur við.

„Ég nenni ekki að fara nánar út í þetta. Ég hefði átt að nýta þessi færi mín og þá hefði þetta farið öðruvísi. Það getur hver og einn dæmt fyrir sig um þessi víti.“

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner
banner